oo svo margt eftirminnilegt úr danmörkunni!! 4 mánuðir búnir og margt búið að gerast, buin að fara á marga hesta og allir svo ótrúlega ólíkir.
en ætla að gera smá svona yfirlit yfir þetta allt saman;
kom hér 19.ágúst litla stelpan frá Hornafirði að leggja land undir fót og halda í ævintýri sem hefði getað orðið alveg frekar lengra en erfitt að segja nei við því að vera heima með hestana því að þar er eitthvað efnilegt sem þarf að þjálfa líka og svona svo að ég mun sakna danmerkur ofboðslega! og auðvitað allra herna heima;; Rúnar, Guðlaug, Jakob, Ella, Hjalti, HELGA, Gunnar, Hákon, Guðni & mattías litli!!
og ekki má gleyma Brandi!!
en þegar ég kom þá auðvitað bara lærði ég inn á kerfið og svo gekk þetta sinn vanagang og svo stuttu eftir að ég kom þá var mót uppí Vejle þar sem ég keppti á Þór frá Bjarnastöðum í Tölti og Fjórgangi og vann minn flokk í tölti og var í 2.sæti í fjórgangi með sömu tölur og konan í 1.sæti svo að ég fór ánægð heim frá því með rauða og bláa rósettu og minnsta bikar sem ég hef eignast og tvo stallmúla sem eru komnir neðst í töskuna
svo hélt lífið áfram sinn vanagang fórum til Esbjerg Ég,Helga, Gunnar og Guðrún í Sund í svona huges sundlaug með öllum græjum, öldusundlaug, rennibrautir, stökkbretti og svo rómverskt bað .. aaah það var kósý! og svo auðvitað fórum við upp og fengum okkur ís á sundfötunum voða notalegt allt saman og síðast en ekki síst vorum vitlausu megin við götuna þegar rútan okkar heim kom! ..
svo var úrtaka fyrir gangartscup hjá rúnari í Vilhelmsborg 4.október að mig minnir í risa stórri höll, allt voða flott en rúnar var svo inni síðan í fyrra svo að það var bara rugl og mistök hjá nefndinni en svo verður víst örugglega ekkert gangartscup svo að allir búnir að leggja helling á sig til einskis! en hvað um það!
svo kepptum við Guðlaug á hallarmóti á sama stað ég með Baldur og guðlaug með Dáð en ég þurfti því miður að draga mig út eftir fjórganginn því Baldur kallinn var svo helvíti spattaður, og ég var mjööög eftirminnilega með HEY í auganu þetta kvöld þegar úrtakan í fjórgangnum var og reið með eitt auga í lagi og hitt eldrautt og bólgið! ekki mín helgi. en gaman samt sem áður, guðlaugu gekk vel!

svo var stelpu- verslunarferð til Kolding þarna eitthverntímann +Jakob
og verslaður slatti! við helga löbbuðum búð úr búð og svo kom ella með okkur í eina búð og við versluðum eins og brjálæðingar! Ella algjörlega
best í fatainnkaupum!

svo var auðvitað mjööööööööööööög eftirminnileg Legolandsferð í september ef ég man rétt gerðum ýmislegt þar! skoppa og skrítla í S-inu sínu .. það gerist ekki betra!
fullt fullt af myndum frá þeirri ferð ! henni verður seint geymt
svo stuttu eftir að ég kom var kynbótasýning í Herning þar sem rúnar var að sýna eina meri, Gloríu frá Holtsmúla og allir aðal karlarnir að keppa og sýna á þeirri sýningu svo að ágætishestar í braut inn á milli! má þar nefna fálka frá sauðarkróki og svo móálóttur klár sem Jói Skúla var að keppa á þarna í eitthverri grein ábyggilega tölti. en gaman að sjá svæðið í Herning, Heimsmeistaramót þarna 2011 og auðvitað mætir maður á það og nýtir dönskuhæfileika sýna til fulls.
svo núna í vikunni skelltum við okkur til Herning í centrið þar að versa aðeins eða eiginlega guðlaug og rúnar að versla ég fann ekkert nógu spennandi til þess að láta mig hætta að hugsa um að spara fyrir nýja hestinum!
Svo endaði för mín í dag með eftirminnilegum rúnti þar sem ég sá landslag í danmörku í fyrsta skipti.. s.s hólar og hæðir og vötn og svona! en við skutluðumst til Agnars Snorra og hann sýndi okkur eitt stykki kolfinnsson sem var svona líka ágætur bara og svo á bakaleiðinni stoppuðum við aðeins hjá Jóa Skúla og sátum þar örugglega í 3 tíma að spjalla voða öðruvísi dagur, skoðuðum nýju reiðhöllina og svona.
já svo er maður aldeilis búinn að læra um allskonar veikindi, sýkingar og bólgur og bara name it! Doktor Brynja er að mæta í fjörðinn þá má nú Kjartan Dýralæknir fara að herða sig.
en ég er svo sannarlega búin að fást við alveg nógu mörg veikindi! Rúnsi er örugglega buinn með nokkra lítra af pensilíni og svo eitthverjum munnmeðölum og svo hrossasótt og geldingar sem er svosem ekkert nýtt, tannviðgerðir og sitthvaðfleira.
já og svo átti ég mín ljóskumóment sem rúnar var duuuglegur að gera grín að, fattaði einmitt áðann að ég væri með fóðurbreytingu á tánöglinni! það var fyndiið

lærði að drekka rauðvín og lærði að hætta að drekka rauðvín! alfarið mér að kenna reyndar .. það var svo eftirminnilegt kvöld að ég man ekki eftir því! heeee en þar kom nú SKOPPA til bjargar! hahah

söng svo singstar eins og brjálæðingur á afmælinu hennar guðlaugar ! og ég gleymi seint hvað guðlaug var aktíf það kvöldið! það er nu ekki á hverjum degi sem maður verður þrítugur sjáiði til.
en danmerkur ævintýrinu er alls ekki lokið, því mér líkar vel hérna! veðrið er að gera það gott og mikið af mótum og svona svo að ég ætla ekkert að útiloka danmörku sem nýtt ævintýri eitthverntímann seinna
en annars langar mér bara að þakka fyrir mig alveg KÆRLEGA! þetta var nauðsynleg lífsreynsla æðislegt að kynnast ykkur öllum og fá að læra og venjast eitthverju nýju prufa góða hesta .. og slæma hesta líka =)
en fyrst og fremst forréttindi að fá að kynnast öllum og hafa gaman með öllum á vester grenevej 11 !! og ég vonandi kemst í heimsókn eftir áramót 
Knús á ykkur öll og fyrirfram saknaðarkveðjur frá litla vitlausa Hornfirðingnum ykkar ;*
Kveðja Brynja Rut sem hlakkar til að hitta alla heima eins mikið og hún kvíður fyrir því að sakna allra hér 'heima' í DK !!